Póstlistinn okkar

Helgina 12-14 mars 2010 verður Quiltbúðin á Akureyri með húsmæðraorlof fyrir prjóna og hekl konur að Löngumýri í Skagafirði.

Við munum bjóða upp á aðstoð í prjónaskap, sýnikennslu, aðstoð við gimb, rússneskt hekl, tveir hlutir á 1 hringprjón og ýmislegt fleira. Endilega verið duglegar að senda okkur fyrirspurnir því við erum enn að móta dagskránna.

Við munum að sjálfsögðu sýna ykkur fullt af flottum hugmyndum.

Gaman væri að þið mynduð deila með okkur sniðugum hugmyndum af því sem þið eruð að gera.

Einnig er frábært að nota helgina í að slaka á, kynnast, spjalla, miðla og læra af hvor annarri.

Verð helgarinnar er 25.500 kr. Hægt verður að mæta á fimmtudeginum eftir kl. 18:00 og bætast þá við 4.000 kr. eða samtals 29.500,- Innifalið í verðinu er gisting, morgunmatur, hádegismatur, miðdegiskaffi og kvöldverður alla dagana.

Mörg stéttarfélög taka þátt í kostnaði vegna námskeiða og er um að gera að kynna sér það.

Langamýri á sér langa sögu í sambandi við hannyrðir en þar var rekin kvennaskóli í áratugi, þar svífur góður andi yfir vötnum. Aðstaðan er mjög góð, stór og rúmgóður vinnusalur, góð herbergi með uppábúnum rúmum og handklæði fylgja hverju herbergi. Auk þess sem dýrindis matur verður í boði alla helgina.

Á Löngumýri er heitur pottur í garðinum. Takið með ykkur sundfötin, þannig að þið getið notið þess að láta saumaskapinn líða úr ykkur.

Það verður kaffi/te á könnunni alla helgina sem hægt er að ganga í að vild.

Reykingar eru ekki leyfðar innandyra á Löngumýri. Hægt er að bregða sér út fyrir til þess að fá sér “frískt loft” (viðra hundinn).

Vínveitingarleyfi er ekki fyrir hendi á Löngumýri, en að sjálfsögðu er ykkur frjálst að leggja ykkar eigið vín með ykkur á borð og neysla áfengis er heimil á staðnum.

Quiltbúðin verður að sjálfsögðu með opið útibú á staðnum, með fjölbreytt vöruúrval.

Bestur kveðjur Kristrún og Sísa

 

Quiltbúðin

Verslunarmiðstöðinni Sunnuhlíð 12

Akureyri

Símar: 461 2241/892 6711

Opið:

Mán-Fös 10-18

Lau 11-14

quiltbudin@quiltbudin.is
www.quiltbudin.is

 

Myndagallerí

Áhugaverðasíður Síður

Áhugaverðar leiðbeiningar